|
Björgunarsveitin Gerpir, Norðfirði Heimasíða Björgunarsveitarinnar Gerpis Norðfirði |
|
Vafraðu umDagatal Eldra efni
Sveitin Nafn: Björgunarsvetin Gerpir, NorðfirðiTölvupóstfang: gerpir hjá gerpir.comHeimilisfang: Nesgata 4, 740 NorðfirðiStaðsetning: NorðfjörðurHeimasími: 4771999Bankanúmer: 1106-26-1499Tenglar
Flettingar í dag: 59 Gestir í dag: 29 Flettingar í gær: 116 Gestir í gær: 40 Samtals flettingar: 264564 Samtals gestir: 59357 Tölur uppfærðar: 28.1.2012 14:32:35 |
23.01.2012 13:13Fjarnám BjörgunarskólansFjarnám Björgunarskólanns er að fara af stað á nýju ári 2012. Endilega látið félaga innan ykkar sveita vita ef áhugi er fyrir hendi og einhverjir hafa ætlað sér að taka áfanga í fjarnámi. Eftirfarandi áfangar hefjast þessa daga; - 27. janúar Fyrsta hjálp 1 - 27. janúar Fjarskipti - 3. febrúar Rötun - 3. febrúar Ferðamennska - 10. febrúar Björgunarm. í aðgerðum - 10 febrúar Leitartækni - 17. febrúar Öryggi við sjó og vötn - 17. febrúar Fjallamennska 1 - 24. febrúar Snjóflóð 1 Nánari upplýsingar er að finna á www.landsbjörg.is undir Björgunarskólinn, einnig er hægt er að senda okkur tölvupóst á skoli@landsbjorg.is eða hafa samband. Skrifað af Daði 05.01.2012 11:59Flugeldasala á þrettándanumFlugeldasalan opin á þrettándanum, föstudaginn 6.jan kl 14-17. Frekar fátæklegur lager en eitthvað til af smávöru og rakettum. 50% afsláttur!!
Skrifað af Svenna 31.12.2011 12:30ÓtitlaðGamlársbrenna austan við snjóflóðavarnagarð (ofan við Starmýrarblokkir) kl 20:30 á gamlárskvöld. Flugeldasýning í boði Síldarvinnslunnar og Íslandsbanka kl 21:00 frá snjóflóðavarnagörðum. Flugeldasalan er opin kl 10-15 á gamlársdag. 29.12.2011 12:43Síldarvinnslan styður vel við bakið á björgunarsveitinniSíldarvinnslan veitti í morgun Björgunarsveitinni Gerpir styrk að upphæð 2,5 milljónir króna. Gunnþór Ingvason forstjóri Síldarvinnslunnar þakkaði við það tækifæri aðstoðina á aðfangadagskvöld, jafnframt hvað það skiptir miklu fyrir fyrirtæki eins og Síldarvinnsluna, sveitarfélagið og samfélagið allt að eiga öflugar björgunarsveitir sem að eru tilbúnar að takast á við erfið verkefni. Það er skiptir því ekki síður miklu máli fyrir björgunarsveitirnar að eiga góða stuðningsaðila og styrkur sem þessi er eitt af því sem að gerir starf eins og þetta mögulegt og það er okkur ómetanlegt og mikil hvatning og styrkur að finna stuðning eins og þennan. Eins og flestum er kunnugt varð Björgunarsveitin Gerpir fyrir töluverðu tjóni bæði á húsnæði og tækjum í ofsaveðrinu sem gekk yfir á aðfangadagskvöld. Það tjón er á bilinu 2-3 milljónir í heildina. Tryggingarnar munu bæta einhvern hluta en ekki er orðið ljóst hve mikinn. Hluti af styrknum frá Síldarvinnslunni mun því líklega fara í þær lagfæringar sem þarf að gera á húsnæði sveitarinnar. Forsvarsmenn sveitarinnar veittu styrknum viðtöku á stjórnendafundi Síldarvinnslunnar í morgun. Björgunarsveitin Gerpir þakkar kærlega fyrir stuðninginn. Skrifað af Daði 27.12.2011 13:10FlugeldasalaNú fer undirbúningur flugeldasölu að fara af stað hjá okkur og koma flugeldarnir til okkar í dag. Í kvöld kl 20 verður raðað upp og salan græuð. Enn vantar fólk á söluvaktir og eru vaktirnar sem hér segir: Miðvikud. 28.12 15:30 - 19:00 19:00 - 22:00 Fimtud. 29.12 12:30 - 17:30 17:30 - 22:00 Föstud. 30.12 12:30 - 17:30 17:30 - 22:00 Laugard. 31.12 09:30 - 16:00 Skrifað af Daði 21.12.2011 23:13Æfing í FannardalÁ síðasta fundi var farið á æfingu inn í Fannardal þar sem nokkrir ógæfumenn höfðu fest bílana sína. Fengum stjörnubjart og eiginlega of gott veður. Gekk æfingin vel og flestir komu heilir heim. Myndir eru í albúmi. Skrifað af Pálma 19.12.2011 22:15Flugeldafræðsla í NesskólaÍ dag fóru þeir Skúli og Hlynur í Nesskóla og ræddu við nemendur um skaðsemi sem hlotist getur af völdum flugelda ef að ekki er farið gætilega við meðferð þeirra. Jafnframt sýndu þeir myndbandið "Ekkert fikt" og fannst víst sumum nóg um. Skrifað af Daði 16.12.2011 16:50Humber til söluGóðann daginn við ætlum að selja Humberinn okkar. Báturinn er árgerð 85 og mótorarnir eru árgerð 94. Báturinn er í þokkalegu standi miðað við aldur og fyrri störf. Það eru myndir af honum í myndaalbúmi. Báturinn selst hæstbjóðanda. Hægt er að senda tilboð á odinn@gerpir.com Með kveðju Óðinn Skrifað af Óðinn Ólafsson 08.12.2011 09:36Jólatréssala GerpisÍ ár er björgunarsveitin með tré frá Skógrækt Ríkisins á Hallormsstað til sölu en að venju er um að ræða margar tegundir s.s. rauðgreni, blágreni og stafafuru. Skrifað af Daði |